gigny

onwards and upwards

13.05.2009 12:55:25 / gigny

humpdí dumpdí dooo

Jæja!

jææææja

byrjum á lagi dagsins



Er sennilega á leið til Wetzikon í Eurovision helgi. ; )) Verður gaman að hitta kátu hjúin og grísina þrjá. Sólbað á STÓRU svölunum, kannski kveikt upp í arninum. Aldrei að vita nema maður rambi inní Globus svona óóóvart. Og svo safnar maður punktum með því að fara þangað ; ))) það er held ég einhvern vegin tengt inná visakortið hihihi ok, gone to do stuff :haha:

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.05.2009 13:19:24 / gigny

One day! you will be mine...

Mohop shoes.  Geðveikt flottir og ossa sniðugir.


og svo er hægt að kaupa alls konar lita borða með :d   gaman gaman gaman


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.05.2009 20:40:20 / gigny

Sukí te yummy

Smakkaði svo rosalega gott te í Glasgow um helgina og auðvitað þarf ég að finna hvar ég get keypt það.  Kemur frá Suki Tea og heitir Belfast Brew.  Þeir eru með myndarlegt úrval af öðrum teum og aldrei að vita nema ég fari bara að drekka ávaxtate nú eða grænt te, þau líta það girnilega út.

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.05.2009 11:36:22 / gigny

This is Stuart and Dot





Dot's my favorite :haha:

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.04.2009 10:10:11 / gigny

Signý gæludýraeigandi

Ég sem sagt stal/fékk lánaðar nokkrar trjágreinar í Swiss.  Var að vonast til að þær myndu ræta sig hérna í Mílano og verða að fallegum trjám á Íslandi seinna meir.  Í dag uppgötvaði ég svo að ég á lítið gæludýr.  Lítil lirfa er komin úr hýði sínu (ég er að giska, þetta gæti verið geimvera (við vitum í rauninni ekkert hvernig þær líta út)) og býr í laufblaði efst á einni greininni.  Hún dundar sér á daginn við að éta laufblaðið við hliðina. 
Hvað á ég núna að gera, henda henni í ruslið?  setja hana í trén útí garði?  gæti hún verið að bera með sér einhvers konar lirfuflensu :$  Eða bara hafa hana sem gæludýr, taka sætar Ann Geddes myndir af henni og fæða hana á ljúffengum laufblöðum úr súpermarkaðnum.


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.04.2009 09:57:30 / gigny

This just might get interesting !


Dylan Moran í How do you want me, rómantískri gamanþáttaröð. En spennandi :haha: (Tek það fram að þetta er bara spennandi fyrir aðdáendur Dylan Moran)

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.04.2009 17:16:45 / gigny

Ó mí god!

Ólsenbandið snýr aftur 2010.  Ótrúlegt, get ekki beðið.  Nú fer ég og kaupi safnið :lol:
or not, downloada því bara ; )

(af mbl.is :     Hið víðfræga danska Ólsenband mun snúa aftur í bíóhús á næsta ári. Kvikmyndafyrirtækið Nordisk film  vinnur nú að gerð teiknimyndar um glæpaklíkuna frægu, ásamt fólki sem stóð að myndinni "Terkel í klípu". Þetta kemur fram á vef Politiken.

Í myndinni vinnur Ólsenbandið að leynilegri aðgerð fyrir danska forsætisráðuneytið þar sem þjóðaröryggið er í húfi. Aðgerðin snýst um að stela fjaðurpenna H.C. Andersens úr hinu danska Export safni. Ólsenbandið fer sínar eigin leiðir til að leysa verkefnið og munu borvél, kassi af sveskjusafa og haugur af dauðum rottum koma við sögu.

Myndin verður frumsýnd í Danmörku 15. október 2010. )

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.04.2009 22:45:25 / gigny

I think I have a new Idol

Bara flott. Bara sérstök. Outfittin og attitudið rebellious. Af hverju get ég ekki valið mér eitt mál til að skrifa á. Her outfits are a bit sci-fit meets the eighties, geometric, drag like, a lot of referencing, shall we mention seeexy, playful ! I love her bang, and the way she hides her face a bit. I love that all her dancers are male, clever, but she might want to shy away from the Britney dance scenes, looks trashy.  All details and accessories are magnifique and yes I will be taking inspiration (designer lingo, for not copying ; )= ) from some of them.
Good voice and performer.
Eccentricity is the new black.
...and out.

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.04.2009 20:16:41 / gigny

Komin heim

Komin heim til Mílanó eftir góða páskahelgi í Wetzikon.  Hafði það svaka gott hjá Helgu og Alla.  Fórum í ökuferð til St.Moritz, posh place mar, ég tók bara myndir af búðargluggum þarna hehe.  Þetta var smá eins og kosningarferðalag enda tölum við ávallt um pólitík í okkar hittingum, en það er bara gaman.

Ójá, síminn minn er dauður :whut: búhú   Óli lánar mér ljósbleikan gemsa á meðan.  Svo er bara að fara að velja sér næsta sálufélaga :d


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.04.2009 08:58:14 / gigny

Gleðilega páska

Ég er í Wetzikon núna hjá Helgu og Alla, í góðu yfirlæti.  Búin að grilla lax, kjúlla og túnfisk.  Búin að fara í Glatt og uuuuppáhaldsbúðina mína þar, Globus.  Ég fékk að kaupa mér einn disk :haha:    Í dag ætlum við að fara í gönguferð, það er fínt veður, smá gola en sól.  Já og síminn minn er dauður og er ekki að vilja hlaða sig hérna.  Alli heldur að það sé síminn eða hleðslutækið, ég held að það sé landið eða innstungan.  5 ára gamall sími fer ekki að gefa sig núna, það er kreppa og allir verða að bíta á jaxlinn, þar með talinn gemsinn. 

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.04.2009 21:31:40 / gigny

Ég er þreyyyyyttt

Búin að láta laga bévítans internetið í tölvunni minni.  Var með eitthvað bridge dæmi sem "venjulegt" fólk er vanalega ekki með.  Búin að losa mig við þetta.  Vil þakka Guði, Valla og Óla kærlega fyrir hjálpina.  Og ég lofa að vera ekki dugleg við að "bjarga mér sjálf" í framtíðinni ; ))

Er komin með 4 moskítóbit.  Vaknaði upp kl.5.35 fyrir tveimur nóttum við suð.  Svo langt síðan ég hef heyrt þetta andskotans hljóð.  Hef fengið nokkrar martraðir með moskítósuði, þess vegna hélt ég í smá tíma að þetta væri bara draumur.  En nei, alls ekki.  Og helv... mell..   faldi sig bak við koddann minn :^) get a clue fly!!  djö ég verð svo pissed af moskítóflugum.

ahhhhh     róa sig     telja uppað 10  (jú, koma svo Signý, þú getur það)  reynum að telja uppá 6... byrjum á því...    ah screw it

and lets continue

já ég klippti sem sagt á mig topp.  Var búin að spá í því nokkrum sinnum og búin að espa upp í mér spenning og lét að lokum verða af því.  Ég er því komin enn og aftur með stuttan topp

og nei hann á að vera svona skakkur,    Hákon!
Og þið spyrjið:  "hvað gerðiru við afganginn af hárinu?"  hehe ég geymdi hann og ætla mér stóra hluti með hann.  Nei, ekki neins konar hárkolla, en lokkurinn verður notaður til skrauts.  This made me think; af hverju er hár fallegt þegar það er áfast, sem sagt fast á líkamanum á okkur, sérstaklega hausnum, en um leið og það er farið af þá finnst fólki það miður fallegt og er fljótt að henda því.  Hummh, umhugsunarvert...

Já fór uppá via Paolo Sarpi í dag til að taka myndir fyrir verkefni í skólanum.  Ég og Sofia erum að gera það saman, og ætlum að gera það ossa vel því heyrst hefur að það séu flugmiðar til Kína í verðlaun fyrir besta verkefnið.  Verkefnið fjallar um tengsl Kína og Ítalíu, það hafa sem sagt verið dálitlir pústrar undanfarið milli ítalanna og kínverjann hérna í Mílanó.  Lesist: pústrar milli kínversku mafíunnar og þeirrar kínversku.  Þetta verkefni á að brúa bilið milli þessarra menningarheima.  Fyrir okkar verkefni þurfum við að taka fullt af myndum af kínverskum stelpum og jafnmargar af ítölskum stelpum.  Og mikið "píp" vesen að ná myndum af kínversku stelpunum.  Þær eru svo hógværar og alls ekki til í smá (in your face) myndatöku.  Þannig að þetta verkefni hefur hökkt mikið undanfarnar vikur and that stresses me up.  But my new breathing tecnique, in, in and out, takes care of that.

Svo datt málmstykki af sólgleraugunum mínum þannig að ég þurfti að kaupa ný, og málmstykki af nýju gleraugunum datt líka af þannig að ég þarf að finna eitthvað nýtt og líma á í staðinn.

Á morgun förum við að kjósa, ég, Erna og Óli.  Ég á enn eftir að kynna mér flokkana, en ég er býsna viss um hvað ég er að fara að kjósa.

Ó já og þessi jarðskjálfti í Abruzzo, sem ég tók ekki eftir fyrr en ég las um hann á mbl, soldið skrítið að þetta skuli gerast á Ítalíu.  Vissi ekki að Ítalía væri jarðskjálftaland.  Og svo var einhver ítalskur vísindamaður víst búinn að spá fyrir þessum skjálfta, og var kærður fyrir að efna til ófriðar.  Langar rosalega að segja týpískt Ítalía, að hlusta ekki einu sinni á vísindamann, en ég veit ekki hve framarlega þeir eru í jarðskjálftavísindum.

Svo er ég á leiðinni til Swiss á föstudaginn, gleði gleði,  var ég kannski búin að blogga um það, hummmmh, man það ekki, sé það á eftir
Er núna orðin meeega þreytt og verð að fara að sofa.  Góða nótt


» 7 hafa sagt sína skoðun

05.04.2009 16:48:05 / gigny

high five dagsins fær...

Oh hvað ég er hrifin af þessum manni ! Obama mabama uh I wanna take ya to bermuda, bahamas, come on baby hamas... well not hamas :haha: 
hann er of sætur, traustvekjandi og talar af of mikilli röksemi til að vera forseti Bandaríkjanna.  Maður er bara ekki vanur þessu, eftir litla apastrákinn hann Bush. 
Og hann fær high five, and a low six, fyrir að "lýsa því yfir eins og fleiri leiðtogar að þótt  Ísland hafi verið fyrsta landið til að fara niður í öldusogi fjármálaþrenginga heimsins yrði það líka fyrsta landið til að fara upp."  (mbl.is í dag)     
Makes me feel save that Obama has faith in us.

Skipulagt chaos í gangi á mínu heimili.  Verið að þrífa og breyta í eldhúsinu.  Fórum á markaðinn og í súpermarkaðinn í gær og tók þessi innkaupaferð 4 "blíb" tíma.  Páskarnir eru sem sagt að koma og gestir með þeim.  Óli fær kærastann sinn hann Daníel í heimsókn og spenningurinn er slíkur að það er eins og Jesú sé að snúa aftur til okkar jarðarbúa. Daníel er samt ekkert trúaður eða neitt.  Svo fær Erna vinkonu sína í heimsókn.  Ég hins vegar fer til Swiss að heimsækja Helgu og Alla.  Verður gaman ; )  Ég kem heim til þeirra, sest í sófann og hjúfra mig saman eins og snjótittlingur í vetrardrífu.  Hummh, ekki góð samlíking, það verður ekkert kalt hjá þeim sko,  en það er alltaf gott að hafa fjölskylduna sína í kringum sig.  Fósturfjölskyldan mín hérna í Mílanó er samt fín.  Ég kalla Óla oft Hákon þegar hann er að gera eitthvað sem hann á ekki, það fá ekki allir Hákon! hróp, ha Óli!!! 
Ég er svo búin að komast að því (veit ekki hvort þið vissuð það fyrir) að ég er aggressívur persónuleiki.  Erna og Óli eru hins vegar bæði passive og meðvirk í þokkabót.  En ég vinn í því að berja þetta úr þeim.  Þau eru btw fram í eldhúsi akkúrat núna að brugga engiferöl, svaka stolt með ABBA á.  Gerist lífið betra. 


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.04.2009 11:39:33 / gigny

Lifted - Pixar

Varð bara að skella þessu inn. Geðveikt fyndið!!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.04.2009 14:27:24 / gigny

Boys who do comedy


Ég bíð eftir að sjá í fullri lengd þessa þætti með Dawn French. It's a box full of chocolate :haha:

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.04.2009 12:34:14 / gigny

Dear diary! sit back, shut up and listen

Góði Guð, viltu gefa mér tyggjó?    fyndin setning úr bók Davíðs Oddssonar.  Fyndin bók víst, þarf að lesa hana þar sem ég hef heyrt að Dabbi sé með afbrigðum fyndinn maður enda stórgáfaður maður þar á ferð.  Legg til að Dabbi hætti bara í stjórnmálum og fari að skrifa bækur :haha:

Er að fá leið á hárinu á mér, þegar það nær ákveðinni sídd þá verður það óspennandi og leiðinlegt.  Og svo greiði ég alltaf í tagl.  Verð að gera eitthvað í þessu áður en ég klippi topp á mig eða eitthvað annað drastískt.  Komst upp með það þegar ég var yngri, en ég komst líka upp með margt þegar ég var yngri sem ég kæmist ekki upp með í dag. 
Og nei Signý, þú ert ekki að fara að láta reyna á það.

Sá stelpu labbandi í gær, hún var í gallabuxum sem voru klipptar akkúrat á hnjánum, með broti.  Mig langar í svoleiðis.  Fer á þurftamarkaðinn á eftir og leita mér að gömlum gallabuxum fyrir slikk.

Var að fatta að Miley Cyrus, barnapoppstjarna sem á bara eftir að fara meira í taugarnar á mér eftir því sem hún verður eldri, syngur lagið Just Dance.  Gott lag það.  Til hammó Miley.
Því miður er lagið þitt ekki til á Radioblogclub svo ég get ekki spilað það, leitt.
En hérna er hestur með ekkert nafn 

Bjó til snúða um daginn sem eru geðveikt góðir, geðveikt!!  fletur út deigið og smyrð rjómaosti á, rífur súkkulaði yfir og svo jarðaber í litlum bitum á.  Rúllar svo upp í svona 4-5 cm breiða snúða, svona munnbita.  Lostæti :lol:

Er búin að fá gínuna mína aftur, hún var allan tíman hérna í Milanó hjá vinkonu minni.  Nú get ég sko farið að sauma ; )))
hehe yeah right!

Er uppfull af Jimmy Carr onliners.  Horfði á fullt af þeim í gær.  Maðurinn er bara drepfyndinn, og með svo litlu efforti.






» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Dagsetning
9. febrúar 2010
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  5  Alls: 12522
Myndir